Modern Family stjarnan Ariel Winter(18) hafði lengi liðið mjög illa vegna stærðar brjósta sinna. Hún ákvað því fyrir nokkru að fara í brjóstaminnkun og segist hún aldeilis ekki sjá eftir því.
Sjá einnig: Modern Family stjarnan Ariel Winter segist hafa farið í brjóstaminnkun
Hún segir að þegar hún var yngri hafi hún verið alveg flatbrjósta og hafi þá óskað sér að vera með stærri brjóst, en hana grunaði ekki að ósk hennar yrði uppfyllt upp í F-skálar. Ariel var mikið verkjuð vegna stærðarinnar og þar sem hún er mjög lágvaxin, voru brjóst hennar afar óþægileg.
Nú í dag segir hún að þetta hafi verið ein besta ákvörðun lífs hennar og að nú geti hún notið þess að klæðast þeim fötum sem hana langar til og samsvarað sjálfri sér betur.
Sjá einnig: Modern Family stjarna hrasar á sviði
Eins og hún var áður: Ariel varð oft fyrir neikvæðri athygli vegna brjósta sinna og einhverjir létu þau orð falla að hún væri eflaust lauslát fyrir vikið.
Sjá einnig: Modern Family stjarna var háður lýtaaðgerðum
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.