Nýverið henti Khloe Kardashan bróður sínum Rob út af heimili sínu vegna þess að hann er að hitta barnsmóður Tyga, unnusta Kylie Jenner. Mikið ósætti er í fjölskyldunni vegna sambands þeirra Rob og Blac, en Rob deyr ekki ráðalaus og fór því heim til móður sinnar með nýju kærustuna.
Sjá einnig: Blac Chyna: ,,Rob Kardashian er betri í bólinu en Tyga“
Rob er þó byrjaður í ræktinni til að stemma stigum við áunnu sykursýkina sem hann greindist með nýverið. Áður fyrr var Blac mikil vinkona Kim, en sagt er að Rob og Blac hafi náð svo vel saman vegna óánægju þeirra beggja við Kardashian/Jenner fjölskyldunna.
Khloe er virkilega sár við bróður sinn, þar sem hún hefur gert allt sem í hennar valdi stóð til að hjálpa honum, en hann hefur einungis sýnt henni óvirðingu í staðinn.
Sjá einnig: Rob Kardashian er byrjaður með barnsmóður Tyga
Laumast: Blac reyndi að fara huldu höfði þegar hún og Rob voru á ferðinni. Það er þó góðs viti að Rob láti sjá sig meira utan dyra, þar sem hann hefur glímt við einmanaleika og þunglyndi síðustu árin.
Sjá einnig: Bauð Rob Kardashian 13 milljónir fyrir að fara í meðferð
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.