Hann þjáist af sjaldgæfum sjúkdómi sem stafar af því að heiladingull hans virkar ekki sem skyldi. Þrátt fyrir marga fylgikvilla sem tengjast þessum sjúkdómi, hefur Mario Bosco leikið fjöldann allan af hlutverkum í bæði kvikmyndum og þáttum.
Sjá einnig: Hvað er innkirtlakerfi?
Það sem þykir einna sérstakast við Mario að þó að hann líti út fyrir að vera ungur drengur, þá er hann hvorki meira né minna en 43 ára gamall. Hann hefur yfirleitt leikið hlutverk sem eru fyrir mun yngri einstaklinga og hefur nú gefið út bók sem ber nafnið Frá vonleysi til Hollywood og vill hann þar með hvetja fólk að gefast ekki upp á draumum sínum þrátt fyrir fyrirstöðu.
Sjá einnig: Skoðaðu hvernig skjaldkirtillinn þinn er – Þarf að kanna hann frekar?
Sjá einnig: 7 hlutir sem flýta fyrir öldrun húðarinnar
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.