Hann virðist vera svo kampakátur. Rob Kardashian greinilega geislar af gleði þar sem hann horfði á nýju kærustu sína sýna kroppinn sinn í myndatöku sem átti sér stað á strönd í Los Angeles.
Sjá einnig: Rob hefur snúið lífi sínu í 180 gráður
Rob hefur vart látið sjá sig í sviðsljósinu síðustu árin, en eftir að hafa opinberað samband sitt við Blac Chyna hefur hann tekið stór stökk og látið sjá sig nánast daglega. Svo virðist sem Rob er gríðarlega montinn af nýju kærustunni og aðstoðaði hana í einu og öllu á meðan tökunum stóð.
Sjá einnig: Rob keyrði í 19 tíma til að sækja Blac Chyna
Brosandi og kampakáti Rob Kardashian hefur komið úr nokkura ára felum eftir að hann byrjaði með Blac, sem er fyrrverandi kærasta Tyga. Allt hefur verið vitlaust að undanförnu í Kardashian/Jenner fjölskyldunni vegna sambands þeirra og henti meðal annars Khloe bróður sínum út af heimili sínu fyrir vikið. Rob lét sér fátt um finnast og kynnti kærustuna fyrir móður sinni, Kris Jenner og flutti því næst til Blac og sonar hennar og Tyga.
Sjá einnig: Blac Chyna apar eftir Kylie Jenner
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.