Kylie Jenner sver að krem frá fyrirtækinu PureLeef geri rass hennar og brjóst stærri. Kremið kostar rúmar 6000 krónur og hefur raunveruleikastjarnan sagt að það sé eitt það besta sem til er á markaðnum. Fyrirtækið neitar alfarið að Kylie auglýsi merkið fyrir þeirra hönd, en hún segir sjálf að það geri kraftaverk.
Sjá einnig: Kylie Jenner þráir að vera einhleyp
Mörgum þykir þó afar ólíklegt að kremið eitt og sér hafi gert það að verkum að línur hennar eru svona lögulegar, en Kylie segist ekki hafa gengist undir neinar lýtaaðgerðir, hvorki á brjóstum né rassi, en viðurkenndi þó fyrir stuttu að hafa fengið sér varafyllingu. Kylie neitaði því þó í meira en ár, en komst svo ekki hjá því að viðurkenna það, vegna þeirra gríðarlegu útlistbreytinga sem hafa átt sér stað síðastliðin ár.
Sjá einnig: Þær prófa varalit frá Kylie Jenner
Kylie segir að það er mjög mikilvægt að nota kremið reglulega til þess að fá góða útkomu. Hún gefur aðdáaendum sínum á Instagram tillögur af hinni fullkomnu valentínusargjöf – Undrakremið frá PureLeef.
Sjá einnig: Þær prófa varalit frá Kylie Jenner
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.