Söngvarinn ofurmjúki Sam Smith (23) hefur heldur betur minnkað ummál sitt til muna að undanförnu. Hann hefur hvorki meira né minna en losað sig við tæp 20 kíló, þökk sé nýju mataræði sem hann er að fylgja. Margir aðdáendur hans hafa áhyggjur af því að hann sé að verða of grannur og að í kjölfarið hann muni missa þennan sjarma sem hann hefur í rödd sinni.
Sjá einnig:Hrífur alla með sér með lagi Sam Smith
Sam segir þó að þó svo að hann hafi minnkað kolvetni og fjarlægt mjólkurvörur úr mataræði sínu, sé hann enn veikur fyrir ruslfæði. Holdarfarið hefur víst ekkert að gera með rödd söngvarans, þrátt fyrir slök ummæli sem söngvarinn hefur fengið vegna aðhaldsins og gera má ráð fyrir að hann haldi áfram að vera “mjúki maðurinn” áfram.
Sjá einnig: Tveggja ára íslenskur strákur syngur lag með Sam Smith
Sjá einnig: Sam Smith með nýja jólaballöðu – hátíðleg og falleg
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.