Kim Kardashian er bara alls ekki sátt við það að eiginmaður hennar Kanye West finni sig endalaust knúinn til að tjá sig um öll sín málefni á Twitter. Kim er mjög stuðningsrík eiginkona en undanfarið hefur hún látið í sér heyra og kærir sig ekki um að hann taki þátt í því að blaðra um fólk á samfélagsmiðlum.
Sjá einnig: Kanye West stórskuldugur eftir vikuna
Kanye hefur meðal annars talað um að biðja Mark Zuckerberg um að fjárfesta í sér og talað um sig sem Walt Disney nútímans. Kim styður allt sem kemur að því að markaðssetja sjálfan sig, en líkar ekki við að hann taki þátt í dramatík á Twitter, þar sem hún sé móðir og vilji sýna gott fordæmi.
Kanye hefur einnig kveikt í ósætti eftir að hann söng um Taylor Swift í nýju lagi eftir sig og segir að “hann hafi gert þessa tík fræga”, en svo virðist sem allt sé í fínu lagi í hjónabandi þeirra. Kim er mjög stuðningsrík og Kanye hefur verið mjög upptekinn, en þarf kannski bara að komast í smá frí áður en hann sprengir Twitter.
Sjá einnig: Kim valdi rassinn fyrir Kanye
Sjá einnig: Rosaleg tískusýning hjá Kanye West
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.