Kate Moss er á hækjum eftir skíðaslys sem átti sér stað á meðan hún var í fríi með nýja kærastanum Count Nikolai von Bismarck í Swiss á dögunum. Kate var ekki á því að láta hækjur né spelkur koma í veg fyrir að hún klæddi sig upp og fór í stjörnuprýtt einkasamkvæmi sem haldið var í norður London af Matthew Fraud.
Sjá einnig: Kate Moss og Jamie Hince eru að skilja
Kate hoppaði inn í veisluna með aðstoð gamla vinar síns, Matthew en kærastinn var ekki langt á eftir módelinu. Eitt er víst og það er að Kate Moss er algjört partýdýr og lét sig vitanlega ekki vanta meðal útvaldra.
Sjá einnig: Innilit: Heima hjá Kate Moss í London
Sjá einnig: Kate Moss handtekin fyrir dólgslæti: Sturtaði í sig vodka og blótaði áhöfninni
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.