Adele var svo sannarlega sigursæl á Brit Awards. Hún vann hvorki meira né minna en 4 verðlaunagripi og í kjölfarið rúllaði Adele ekki bara næstum því úr kjólum sínum, heldur tók hún allan tilfinningaskalann uppi á sviðinu.
Sjá einnig: Adele grét allan daginn eftir Grammy hátíðina
Adele vann til verðlauna fyrir besta breska lagið, besta söngkonan, Mastercard besta plata ársins og fyrir óvæntan heimsframa. Hún braut aðeins upp á venju þessa hátíðar með því að blóta upp á sviði í beinni útsendingu, en hún þurfti að biðjast velvirðingar á blótsyrðunum síðar á hátíðinni. Adele rétt missti af verðlaununum fyrir besta myndbandið, en brá heldur betur í brún þegar hún vann til þriðju verðlaunanna og felldi nokkur tár í kjölfarið.
Ég týndist í dálítinn tíma og ég var ekki viss um það hvort ég kæmi aftur. Þið öll sem eruð svona almennileg við mig, það er svo indælt.
Sjá einnig: Adele eyðileggur myndatöku hjá aðdáendum sínum
Óvænt gleði tár: Adele var djúpt snortin eftir sigurinn.
Sjá einnig: Adele: „Mér finnst leiðinlegt í ræktinni“
Haft var orð á því að Adele hafði næstum rúllað út úr kjólnum sínum, en stórglæsileg var hún, grátandi, hlæjandi og bölvandi.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.