Söngkonan fræga, Kelly Clarkson (33) fór með dóttur sína River Rose í Disneyland í Kaliforníu á dögunum. Hún á eitthvað eftir af meðgöngu sinni en bumban virðist vera í fullum blóma og ekki bólaði á því að hún ætti í vandræðum með að ganga um allan garðinn.
Sjá einnig: Josh Groban og Kelly Clarkson taka dásamlegan dúett
Kelly hefur verið gift tónlistarumboðsmanninum Brandon Blackstock, frá október árið 2013 og eiga þau dótturina River Rose.
Nóg hefur verið að gera hjá Kelly að undanförnu, þar sem hún er einn dómara American Idol, en segja þau sem með henni sitja að hún sé tilvalinn dómari í keppnina. Kelly var fyrsti sigurvegari American Idol og hefur fylgst með öllum 15 þáttaröðunum síðan þá og ef einhver veit eitthvað um keppnina, þá er það hún.
Sjá einnig: Kelly Clarkson er ófrísk af sínu öðru barni
Nýlega gaf söngkonana út að hún væri opinberlega orðin rithöfundur, þar sem hún er að vinna í fyrstu bók sinni, sem ber nafnið River Rose and the Magical Lullaby og kemur hún út í október á þessu ári.
Kelly hefur ávallt verið fyrir að velja þægindin fram yfir stílinn á frídögum sínum, en hún gerði sér þó lítið fyrir og gekk um allan garðinn, eins og ekkert væri.
Sjá einnig: Kelly Clarkson „slátrar“ lagi Taylor Swift
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.