Beyoncé Knowles er æf yfir myndum sem verið er að dreifa á netinu, en þær voru teknar á Super Bowl þar sem hún var stjarna hátíðarinnar með stórglæsilegt atriði.
Myndirnar sem verið er að dreifa eru hins vegar ekki flottar en þar eru teknar myndir af öllum svipum sem hún kann að hafa sýnt í öllu atriðinu og búið að búa til myndaalbúm úr því.
Fjölmiðlafulltrúi Beyoncé hafði samband við síðuna sem birti myndirnar til að byrja með og bað þá vinsamlegast að fjarlægja þessar myndir en þeir sinntu því ekki.
Þessi kona er náttúrulega gyðja og erfitt að reyna að ná slæmum myndum af henni, en hérna eru nokkrar af þeim sem um ræðir.