Kelly Clarkson kom fram í American Idol á dögunum og tók lagið Piece by Piece sem hún samdi um föður sinn sem yfirgaf hana í æsku.
Sjá einnig: Átakanlegar og djúpar myndir í áranna rás
Kelly brotnar niður og nær varla að klára lagið og varla mátti sjá þurrt auga í salnum. Sjáið þetta!
Eins og sjá má er Kelly ófrísk en hún er komin 8 mánuði á leið.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.