Nýlega fengum við fregir af því að Tyra Banks (42) hafði eignast son með aðstoð staðgöngumóður. Litli drengurinn fæddist fyrir um mánuði síðan og fékk hann nafnið York Banks Asla.
Sjá einnig: Tyra Banks eignast kraftaverkabarn
Þetta er í fyrsta skiptið sem sést til Tyra opinberlega frá því að hún varð móðir, en hún tilkynnti 27 janúar á þessu ári að hún og kærasti hennar, norski ljósmyndarinn Erik Asla höfðu eignast sitt fyrsta barn saman með hjálp staðgöngumóður.
Besta gjöfin sem við unnum svo hart að og báðum fyrir er loksins komin. Hann er með fingurnar mína og stóru augun og með hökuna og munninn frá pabba sínum Erik.
Tyra hefur verið í sambandi með Erik í tvö ár, en hefur áður talað opinberlega um frjósemisvandamál sitt, en henni líður svo sannarlega eins og sonur hennar sé algjört kraftaverk og telur tilkomu hans vera ljósið í endanum á göngunum.
Sjá einnig: Tyra Banks: ,,Þetta er ég í raun og veru“
Sjá einnig: Á í erfiðleikum með að verða ólétt en hefur ekki misst vonina
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.