Nú vitum við hvorki upp né niður í máli Miley Cyrus og Liam Hemsworth. Þau hafa átt sín góðu tíma og verri tíma, hætt saman nokkrum sinnum, trúlofast, en síðan slitið trúlofuninni, en síðan lítur út fyrir að þau eru aftur trúlofuð, eða hvað?
Sjá einnig: Miley er komin aftur með gamla trúlofunarhringinn
Svo gæti verið að Liam sjái eitthvað eftir því að hafa látið verða að því að trúlofast Miley aftur, þar sem Jennifer Lawrence virðist vera komin inn í jöfnuna. Jennifer er mikil vinkona Liam eftir að þau byrjuðu að vinna saman við Hunger Games og hann leitaði mjög mikið til hennar þegar hann átti í erfiðleikum eftir sambandsslitin við Miley. Nú er bara spurningin hvort eitthvað annað sé í gangi á milli þeirra en vinátta?
Sjá einnig: Miley eyddi áramótunum með Liam
Sjá einnig: ennifer Lawrence segir frá vandræðalegum atvikum
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.