Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian stígur ekki út úr húsi án þess að vera mynduð í bak og fyrir. Kim var á flakki í Beverly Hills í gærdag þegar þessar myndir náðust af henni og samkvæmt miðlum á borð við Mirror Online var Kim gangandi tískuslys.
Sjá einnig: Tískuslys ársins 2015
Kim klæddist húðlituðum þröngum samfesting og grænum jakka. Flott að venju – hvað sem aðrir segja.