Þessi ástralska mamma heitir Haddas Ancliffe (21). Hún hefur heillað netheima upp úr skónum með fallegu myndunum sínum á Instagram. Hún leggur mikið upp úr því að fela það ekki að hún hefur gengið með barn og vill að við konur séum stoltar af því að hafa gengið með barn. Haddas vill að við elskum líkama okkar í hvaða formi sem hann er.
Á þessa mynd skrifar hún: „Bara ég, appelsínuhúðin mín og flamingóinn. Það er gott“
Mælum eindregið með því að þið kíkið á þessa flottu konu á Instagram.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.