Þessi kona, í Tel Aviv, lagði bílnum sínum í löglegt stæði en verkamenn í götunni merktu stæðið eins og stæði fyrir fatlaða, meðan bíllinn var í stæðinu. Bíllinn var svo dreginn í burtu! Konan var sektuð og hún hélt því fram að stæðið hefði aldrei verið fyrir fatlaða heldur bara almennt stæði. Hún auglýsti á facebook eftir einhverjum sem gæti hjálpað henni að sanna sitt mál og þá kom þetta myndband upp úr krafsinu.
Endaði málið með því að bæjarstjórinn í Tel Aviv varð að biðjast opinberlega afsökunar.