Vefmiðillinn DailyMail greinir frá því að sést hafi til körfuboltamannsins Lamar Odom á bar í Los Angeles með drykk í hönd, en það eru einungis tæplega fimm mánuðir síðan Lamar fannst meðvitundarlaus á vændishúsi eftir of stóran lyfjaskammt. Samkvæmt sjónarvottum keypti Lamar sér mörg glös af áfengi á Johnny O´Brien barnum í Los Angeles þar sem hann var staddur ásamt félögum sínum.
Sjá einnig: Lamar Odom gengur í fyrsta skipti eftir vændishúsaatvikið
Lamar mætti í kirkju á páskadag.
Hvorki fjölmiðlafulltrúi Odom eða talsmenn Kardashian-fjölskyldunnar hafa viljað tjá sig um málið.
Myndir: DailyMail