Paris Jackson fagnaði 18 ára afmæli sínu með því að heiðra minningu föður síns, Michael Jackson, með því að fá sér nýtt húðflúr.
Sjá einnig: 17 ára gömul dóttir Michael Jackson sækir fundi hjá AA
Paris deildi mynd af flúrinu á Instagram í gær og er það á handlegg hennar og eru þetta orðin „Queen of My Heart“ í skrift Michael.
„Allir líta á hann sem konung poppsins. Fyrir mér var hann líka konungur hjarta míns“ skrifaði Paris við myndina.
Sjá einnig: Dóttir Michael Jackson er orðin fullorðin
A photo posted by Justin’s Dermagraphink Tattoo (@dermagraphink) on
Í júní næstkomandi eru komin 7 ár síðan Michael lést, aðeins 50 ára gamall.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.