Nýja bókin, Kardashian veldið: Hið umdeilda ris amerísku konungsfjölskyldunnar, er sögð eiga eftir að tæta líf Caitlyn Jenner í sundur.
Í bókinni kemur fram að Kris Jenner hafi átt þátt í því að kynlífsmyndband dóttur sinnar Kim Kardashian hafi komist í hendur almenings og reynt að koma í veg fyrir að eiginmaður hennar Bruce Jenner færi í kynleiðréttinguna.
Sjá einnig: Kris Jenner- Reyndi hvað hún gat til þess að snúa Bruce
Bókin er skrifuð af Ian Halperin, en svo virðist sem hann er ekki allur fyrir að koma Kris á hné, heldur tekur hann harkalega á málum Catilyn Jenner. Hann segir að kynleiðréttingin hafi í raun verið eins konar afsökun fyrir því að hylma yfir glæp, þar sem Caitlyn átti þátt í bílslysi sem varð einni manneskju að bana í fyrra.
Í febrúar 2015 lést hin 69 ára gamla Kim Howe eftir að umboðsmaður Caitlyn, Jessica Steindorff keyrði á bifreið hennar. Jessica hafði keyrt í nokkra mánuði á útrunnu ökuskírteini, en eftir 7 mánuði lauk málaferlunum með því að Caitlyn greiddi tveimur fullorðnum ættingjum hinnar látnu bætur.
Sjá einnig: Caitlyn Jenner mátar brúðarkjóla
Það þýðir þó ekki að Caitlyn hafði notað tækifærið að hverfa aðeins úr sviðsljósinu vegna málaferlanna í þeim tilgangi að halda áfram með kynleiðréttingaferli sitt. Ian Haperin er þó þekktur fyrir að grafa upp alls kyns leiðindi stjarnanna upp á yfirborðið og hefur gert það að vinnu sinni. Hann skrifaði einnig bækurnar Unmasked: The Final Years of Michael Jackson og Who Killed Kurt Cobain, en þær eru fullar af ásökunum og áróðri af hans hálfu.
Sjá einnig: Caitlyn Jenner kyssir Kris Jenner á munninn
Ian Halperin telur sig vera háklassa rannsóknarblaðamann og er hans lifibrauð að grafa eftir því sem er óhreint í pokahorni stjarnanna.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.