Hún hefur kannski ekki ennþá óskað þeim til hamingju opinberlega, en Kim Kardashian hefur sýnt bróður sýnum og tilvonandi mágkonu stuðning með því að eyða með þeim tíma.
Sjá einnig: Rob felldi tár þegar Blac Chyna játaðist honum
Það var í síðustu viku sem bera fór á því að stríðsöxin hafi verið grafin á milli Kardashian/Jenner fjölskyldunnar og Blac Chyna. Þau hafa alltaf sagt að fjölskylda er fjölskylda og hefur það sýnt sig, þar sem fyrrverandi eiginmenn og kærastar eru hluti af fjölskyldunni, sama hvað þeir gera af sér. Ekki þarf að líta langt, því Scott mætir enn í fjölskylduboð og Lamar er aldrei skilinn útundan.
Sjá einnig: Blac Chyna lætur Kris Jenner heyra það
Í síðustu viku birti Kylie Jenner mynd af sér með Blac á Instagram en Blac er einmitt barnsmóðir kærasta hennar. Svona spyr ástin ekki um stað né stund, en gott að vita að allt er að komast í blóma.
Sjá einnig: Rob ætlar í svuntuaðgerð til að gleðja Blac Chyna
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.