Drottningin mætti á svæði við Windsor kastala í hestvagni með eiginmanni sínum hertoganum af Edinborg til að njóta hátíðar sem haldin var í tilefni 90 ára afmælis hennar.
Sonur Margrétar drottningar, Charles prins tók á móti móður sinni þegar hún steig út úr vagninum og kyssti hana innilega á kinn og hendi.
Fjöldinn allur af kóngafólki, frægum söngvurum og leikurum komu fram á hátíðinni, ásamt því að skemmtiatriðin fólu í sér um það bil 900 hesta.
Sjá einnig: Kate Middleton í sínu fyrsta sjónvarpsviðtali í fimm ár
Drottningin virtist skemmta sér konunglega, en eiginmanninum fannst heldur hávaðasamt og sást til hans halda fyrir eyrun vegna láta.
sjá einnig: William Prins brestur í grát við Taj Mahal
Ant og Dec voru veislustjórar kvöldsins, leikkonan Helen Mirren flutti ræðu um unglingsár hennar hátignar og fjöldinn allur af tónlistarmönnum tóku lagið fyrir hana, til að mynda Kylie Minogue og Jess Glynne. Hátíðinni lauk með að gríðarstórri köku var rúllað inn á leikvanginn og fallbyssuskotum var skotið af gömlum sið.
Sjá einnig: Kate Middleton og George prins horfðu á pólóleik
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.