Amber Heard sótti um skilnað eftir að Johnny Depp lamdi hana í andlitið með símanum sínum. Hún hefur kært fyrir heimilisofbeldi og sótt um nálgunarbann á Johnny.
Sjá einnig: Amber Heard og Johnny Depp skilja
Aðilar sem þekkja til hjónana segir að þetta einungis síðasta atvikið sem átti sér stað og á Amber myndband af Johnny berja hana. Amber hringdi á lögregluna eftir að Johnny sló hana í andlitið með Iphone síma sínum, en hann flúði vettvanginn þegar lögreglan var á leið á svæðið. Amber segir að hann hafi boðið henni fjárhæð fyrir að þaga um verknaðinn, en hún lét ekki segjast.
Talsmenn leikarans segja að hann neiti að svara svona fáranlegum ásökunum í sinn garð og mætti hann ekki fyrir rétt vegna ákærunnar. Hann var vant við látinn við að kynna nýjustu kvikmynd sína Alice Throug the Looking Glass
Sjá einnig: Óþekkjanlegur Johnny Depp – Myndir
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.