Þetta er Stepan. Hann er björn og býr með Svetlana og Yuriy Panteleenko í Moskvu í Rússlandi. Hjónin tóku Stepan að sér þegar hann var bara 3 mánaða. Hann fannst aleinn í skógi og var í slæmu ástandi. Svetlana og Yuriy ákváðu að taka hann að sér og það var fyrir 23 árum.
Stepan er löngu orðinn fullorðinn björn og hjálpar til á heimilinu, meðal annars með því að vökva blómin. Hann horfir meira að segja á sjónvarpið með „foreldrum“ sínum.
„Hann elskar fólk og er mjög félagslyndur björn og það kemur fólki kannski á óvart en hann er ekkert grimmur. Hann hefur aldrei bitið neinn,“ segir Svetlana.
Stepan borðar 25 kg af fisk, grænmeti og eggjum á hverjum degi. Hann heldur sér í formi með því að leika sér í fótbolta.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.