Þegar talað er um brunasár dettur flestum í hug meiðsli á húðinni eftir eld eða hita. Brunasár geta einnig hlotist af rafmagni, geislun eða ertandi efnum. Greint er á milli:
- 1. Fyrsta stigs bruna. Húðin er rauð og sár (svipað og sólbruni).
- 2. Annars stigs bruna. Sárin eru dýpri, blöðrur myndast.
- 3. Þriðju gráðu bruna. Vefurinn er dauður í öllum lögum húðarinnar, yfirleitt þörf fyrir húðígræðslu.
Tafarlaus meðferð miðast við að takmarka umfang skaðans og að koma í veg fyrir að bruninn verði alvarlegri.
Hvernig á að draga úr skaðanum?
Mikið ef vatni er bráðnauðsynlegt! |
- Nauðsynlegt er að kæla brennda svæðið. Skolaðu það því með köldu rennandi kranavatni eins fljótt og auðið er, en ekki svo köldu að það sé óþægilegt.
- Skolaðu að minnsta kosti í klukkustund, eða þangað til það er ekki lengur sárt þegar þú hættir að skola. Ekki er þó ástæða til að kæla lengur en í 4 klukkustundir.
- Fyrstu gráðu bruni, til dæmis sólbruni, þarfnast ekki meðferðar.
- Brunasár sem þarfnast meðferðar:
- Sár sem eru stærri en lófi.
- Brunasár í andliti, á höndum og í klofi.
- Allur þriðja stigs bruni.
- Flestur annars stigs bruni.
Sjá einnig: Í hvað getur þú notað Aloe Vera?
Gættu þess að vera á varðbergi gagnvart því að erfitt getur verið að greina milli annars og þriðja stigs bruna.
- Á leiðinni til læknisins á að leitast við að kæla brunasár með vatni eins mikið og hægt er með vatni, eða nota rennandi blaut og hrein handklæði.
- Ekki sprengja blöðrurnar.
- Ekki nota brunaáburð né önnur gömul húsráð, vatn er það eina rétta.
- Mundu eftir að fá stífkrampasprautu!
- Eru aukaverkanir vegna brunasára?
- Þegar húðin brennur hættir hún að veita vörn gegn umhverfinu, svo að mikil hætta er á sýkingu. Því er mikilvægt að lauga brunasárin vandlega innan 6 klukkustunda og að halda sárunum hreinum meðan þau eru að gróa.
Ef grunur er á sýkingu, þ.e. ef vart verður við aukinn roða, bólgu og sáran slátt eftir nokkra daga, skal leita til læknis!
- Eftir alvarlegan bruna myndast ör.
- Ef bruninn er mjög mikill og alvarlegur, verður vökvatap líkamans mikið. Það veldur truflunum í æðakerfi og saltjafnvægið raskast. Þegar svo háttar til þarf sjúklingurinn að gangast undir krefjandi læknismeðferð á sérhæfðri brunadeild.
- Góð ráð
- Haltu smábörnum í hæfilegri fjarlægð þegar þú steikir, sýður eða grillar.
- Helltu aldrei eldfimum vökva á logandi grill. Loginn er hættulegri en þú heldur.
- Olíubruna í potti má aldrei reyna að slökkva með vatni. Þá verður sprenging. Kæfðu eldinn (t.d. með pottloki), og taktu pottinn af heitri hellunni.
Fleiri heilsutengdar greinar má finna á
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.