Lisa Marie Presley (48) hefur sótt um skilnað við eiginmann sinn, gítarleikarann Michael Lockwood (55). Lisa sótti um skilnaðinn og segir að ástæðan hafi verið óásættanlegur ágreiningur. Hún hefur sótt um fullt forræði yfir börnum þeirra, tvíburunum Harper og Finley (7) og gefur brátt fyrrum eiginmanni sínum aðeins færi á að hitta dæturnar undir eftirlitil
Sjá einnig: 10 skammvinn hjónabönd í Hollywood
Lisa og Michael gengu í hjónaband í janúar 2006 í Japan, en Lisa vill ekki sjá aur frá Michael, hvort sem það er fyrir dæturnar eða hana, eftir að skilnaðurinn er genginn í garð.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.