Ég veit ekki alveg hvort mér eigi að finnast þetta hreint út sagt sjokkerandi sjón eða hvort ég eigi að láta eins og ekkert sé eðlilegra. Ekki ber á öðru en að frú Kim Kardashian West gangi um með rassapúða. Það má svo sem vel vera að hún vilji aðeins jafna út lögun á rassi sínum með sérstaklega staðsettum púðum og rennir það jafnvel stoðum undir að Kim sé mannleg og ekki með rass sem er ekki fullkomlega kúlulaga.
Sjá einnig: Kim elskar að vera á al- eða hálf nakin
Kim myndaðist nýverið og náði flassið á myndavélinni að lýsa í gegnum pils hennar og þar með afhjúpa sannleikann – Rassapúðar!
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.