Svo virðist sem spilin séu eitthvað að snúast. Scott Disick eyddi þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna með fyrrum eða núverandi tengdamóður sinni og vinkonum hennar á meðan Kourtney er í djammferð á Miami við vinkonum og Justin Bieber.
Sjá einnig: Kourtney Kardashian: „Ég er bara 5 mínútur að hafa mig til!“
Scott birti mynd af sér á Instagram og sagði sjálfan sig vera “couger” temjari, en kvaðst þó að vera að grínast vegna þess að Kris Jenner var ein af konunum á myndinni.
Kourtney í afmæli sameiginlegs vinar hennar og Justin Bieber og enn og aftur spruttu upp sögusagnir þess efnis að hún og Justin Bieber séu í afar nánu sambandi. Sagt var að Kourtney hafi horfið í stutta stund úr afmælinu og snúið til baka gangandi á eftir Justin.
Scott skellti sér þó í partý til vinar seinna um daginn og klæddist einkennisklæðnaði sínum, afainniskóm sem hafa verið skrifað á Lord Disick.
Sjá einnig: Er Kourtney að sakna gamla lífsstílsins?
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.