Leikkonan Liv Tyler (39) og eiginmaður hennar David Gardner tilkynntu að litla stúlkan þeirra Lula Rose væri komin í heiminn.
Sjá einnig: Liv Tyler er ófrísk enn á ný
Liv birti mynd ad David og nýjasta fjölskyldumeðlimnum á Instagram á sunnudaginn. Við myndina skrifaði Liz:
Halló!!!! fallega litla stelpan okkar er hér !!! Lula Rose Gardner. Við erum svo hamingjusöm að hjartað okkar er að springa úr ást !!!!
David skirfar:
Fallega stúlkan okkar er komin “Lula Rose Gardner” ótrúlega falleg, heilbrigð og ég þakka guði fyrir að hún líkist mömmu sinni.
Sjá einnig: Liv Tyler sýnir á sér bumbuna
Myndir náðust af foreldrunum fara með stúlkuna sína heim í New York og brostu þau eyrnanna á milli og geislaði leikkonan af hamingju. Liv á fyrir soninn Milo (11) úr fyrra hjónabandi og Sailor (16m) með David og David á 8 ára gamlan dreng að nafni Gray úr fyrra hjónabandi.
Þau eru aðallega búsett í New York vegna þess að sonur David býr þar og hann starfar þar, en fara mjög mikið til Bretlands, en þau stefna á að vera meira í New York, svo systkinin geti öll verið á sama stað.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.