Kim Kardashian sagði í nýlegum Keeping Up With The Kardashians (KUWTK) að Kanye hafði verið mjög pirraður við hana þegar hún komst ekki á þann stað sem hann var að taka upp eitt tónlistarmyndband sitt hér á Íslandi. Kanye var að því mjög vonsvikin með hana og segir hún að hún sé vanalega með allt á hreinu og brást honum þar með hrapalega.
Sjá einnig: Kílóin hrynja af Kim
Hún segir einnig að hún hafi algjörlega gleymt sér í að skoða sig um og að fá sér pylsu í samnefndum standi, á 37 ára afmæli Kourtney systur sinnar að hún hafði alveg gleymt tímanum.
Kanye kyssti hana þó og sagði að það væri allt í lagi, en svo virtist ekki vera þegar hann rauk frá matarborðinu seinna um daginn í rokkna fýlu. Vinur Kim, Jonathan spurðu hana hvers vegna hann væri reiður og þá sagði Kim að hann væri reiður vegna þess að hún hafði ekki komið og horft á hann í tökum á myndbandinu og því væri bræði hans algjörlega hennar sök. Þau höfðu flogið alla þessa leið til að vera með honum í að taka upp myndbandið og hún var búin að segja honum að hann væri í algjörum forgangi hjá henni.
Kanye er ekki þekktur fyrir að vera skaplaus, en þarna sannaðist enn og aftur að hann er í raun fýlupoki.
Sjá einnig: KanyeKanye West vill að Kim Kardashian grennist meira
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.