Beverly Hills 90210 leikkonan Shannen Doherty (45) hefur verið að berjast við brjóstakrabbamein í töluverðan tíma núna og tilkynnti hún heiminum fregnirnar í ágúst í fyrra. Hún hefur verið dugleg við að leyfa öllum 252.000 fylgjendum sínum að fylgjast með ferli sínu á Instagram reikningi sínum og nú myndaði hún það skref meðferðarinnar að raka á sér hárið.
Sjá einnig: Shannen Doherty greindist með brjóstakrabbamein
Hún setti 6 myndir á Instagram, sem sýndi hana með móður sinni og vinkonu vera að taka af skarið og láta hárð flakka.
Shannon sagði í þættinum The Dr. Oz Show nýverið að hún gæti ekki lengur átt börn eftir þessa meðferð og þurfi að gangast undir aðgerð fljótlega. Hún segir að hún og eiginmanni hennar, Kurt Iswariento sem hún giftist árið 2011 hafi langað í börn saman, en þar sem hún þarf að taka lyf sem kemur í veg fyrir estrogenframleiðslu eru líkurnar á barneignum afar ólíklegar. Hún þarf mögulega að gangast undir legnám, en segir þó að sú tilhugsun sé að venjast, þar sem hana langi frekar til að lifa og eyða lífi sínu með eiginmanni sínum, heldur en að taka áhættuna.
Sjá einnig: 6 venjulegir hlutir sem auka líkur á brjóstakrabbameini
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.