Hvílík óheppni að þurfa að hnerra á meðan þú ert með augnhárabrettara kyrfilega klemmdan utan um augnhárin. Þessi stúlka lenti í, þegar hún var að bretta upp á sín augnhár.
Sjá einnig: DIY: Krullaðu augnhárin þín með skeið
Hún hnerraði og hreinlega reif helminginn af augnhárum sínum af sér í leiðinni. Í fyrstu hélt hún að hún hefði klippt augnlokið á sér í tvennt, en til allra lukku var það ekki reyndin. Skaðinn var aðeins sá að hún þarf að bíða í nokkrar vikur þar til augnhárin vaxi á nýjan leik.
Augnhárin eru til þess gerð að koma í veg fyrir að vindur fari of mikið í augun og til þess að vernda augun almennt.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.