Kim Kardashian (35) ræður sér ekki fyrir gleði vegna þyngdarmissis síns. Hún hefur verið í grimmu aðhaldi með hjálp Atkins mataræðisins og hefur hún reglulega verið að deila með aðdáendum sínum hvernig henni gengur að losa sig við kílóin eftir fæðingu sonar síns.
Sjá einnig: Kim kafmáluð í ræktinni
Hún hefur opinberað að hún sé orðin 57 kíló og birti síðan mynd af sér vera að máta föt á Snapchat með orðunum:
Hey þið, lítur mittið á mér ekki út fyrir að vera photoshoppað?
Kim stefnir að því að verða 54 kíló og er því ekki langt frá óska þyngdinni, en hún bætti víst á sig 27 kílóum þegar hún gekk með son sinn Saint. Kanye hefur þó verið duglegur við að hjálpa eiginkonu sinn, svo hún geti unað sér vel í lögulegum líkama sínum og sagði hún á heimasíðu sinni kimkardashianwest.com að hún væri sinn versti gagnrýnandi og að Kanye væri sinn mesti stuðningsmaður.
Sjá einnig: Kim er fúl yfir fyrsta orðinu hans Saint West
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.