Þegar Brianne Dow (24) komst að því að hún væri ófrísk sagði hún eiginmanni sínum ekki frá því strax. Hún setti á svið myndatöku með ljósmyndaranum Samantha Boos og sagði manninum sínum, Brandon, að þau hefðu unnið þessa myndatöku í leik.
Þau fóru í almenningsgarð og Samantha lét þau fá sína krítartöfluna hvort. „Ég sagði þeim að skrifa 3 orð um hvort annað sem þeim þykir lýsa þeim best,“ sagði Samantha.
Brianne skrifaði hinsvegar „Þú ert að verða pabbi“ á sína krítartöflu
„Viðbrögð Brandon voru óborganleg þegar hann las á töfluna hennar Brianne.
Hann gat ekki haldið aftur af tárunum
Svo fallegt
Þau eiga von á barni sínu í febrúar
Það var erfitt fyrir Brianne að halda þessu leyndu en algjörlega þess virði
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.