Beyonce (34) er í fríi með eiginmanni sínum Jay-Z og dóttur þeirra Blue Ivy í Sardaníu. Ekki þýddi eitthvað minna fyrir þennan aðal en að taka sér á leigu stærðarinnar lúksussnekkju. Það sem merkilegra þykir, er að Beyonce gerði sér lítið fyrir og fór upp á einn efsta hluta skútunnar og lét sig gossa fram af eins og ekkert væri.
Sjá einnig: Beyonce var ekki ánægð með brúðarkjólinn sinn
Beyonce var að taka sér smá pásu frá tónleikaferðalagi sínu Lemmonade og virtist njóta lífsins, þrátt fyrir að slúðurmiðlarnir hafa haft orð á því að hana stökk ekki bros á vör í byrjun ferðar sinnar, en ekki bar á öðru en að hún væri að njóta sín til hins ýtrasta áður en hún heldur áfram för sinni að kynna nýju plötu sína um víðan heim.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.