Þessar eru litríkar og flottar frá Freistingum Thelmu.
Gerir u.þ.b 24 stk. en ef þið notið þessi hvítu litlu þá verða þær u.þ.b. 30-34 stk.
Stillið ofninn á 180 gráður. Undirbúningstími 20 mínútur, bökunartími 20 mínútur.
Innihald
340 g hveiti
3 tsk. lyftiduft
½ tsk salt
170 g smjör við stofuhita
375 g sykur
3 egg
2½ tsk vanilludropar
280 ml mjólk
100 g m&m, annað hvort heil eða skorin gróft.
340 g hveiti
3 tsk. lyftiduft
½ tsk salt
170 g smjör við stofuhita
375 g sykur
3 egg
2½ tsk vanilludropar
280 ml mjólk
100 g m&m, annað hvort heil eða skorin gróft.
Aðferð:
- Raðið bollakökuformunum á bökunarplötu.
- Hrærið smjör og sykur vel saman þangað til blandan verður ljós og létt.
- Bætið einu og einu eggi saman við og hrærið vel á milli, bætið svo vanilludropum saman við.
- Blandið hveitiblöndunni varlega saman við ásamt mjólkinni, setjið smá af hvoru tveggja og hrærið á milli.
- Bætið m&m saman við og hrærið með sleif.
- Setjið deigið í formin og passið að fylla þau ekki meira en 2/3. Bakið í u.þ.b. 20 mínútur. eða þar til kökurnar eru orðnar gylltar að lit.
Krem
250 g smjör við stofuhita
500 g flórsykur
3 tsk. vanilludropar
50 ml. rjómi
80 g. m&m skorin smátt (einnig gott að setja í matvinnsluvél)
250 g smjör við stofuhita
500 g flórsykur
3 tsk. vanilludropar
50 ml. rjómi
80 g. m&m skorin smátt (einnig gott að setja í matvinnsluvél)
- Hrærið smjörið þangað til það er orðið mjúkt og fínt.
- Bætið smá og smá af flórsykri saman við og hrærið vel á milli.
- Bætið saman við vanilludropum og rjóma og hrærið vel.
- Bætið saman við m&m bitunum.
Þegar kökurnar hafa verið kældar þá setji þið kremið á, mér fannst koma best út með þetta krem að setja eina matskeið ofan á hverja köku og skreyta með m&m, en hægt er að sprauta því á kökurnar af vild.
Njótið
Thelma
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.