Claus Jørstad (47) lenti heldur betur í þeim kröppum einn daginn þegar hann var í sturtu á heimili sínu. Hann hafði það að vana sínum að hafa Ikea koll í sturtunni til að sitjá á inni í sturtunni, en áður en hann vissi af hafði hann gest annað eistað í sérstök göt sem eru á þessum kolli.
Sjá einnig:Svona er að fara í Ikea í fyrsta sinn
Claus er norskur stjórnmálamaður og ljósmyndari, en hann þjáist af hnémeiðslum eftir slys og á erfitt með að standa lengi í senn, sem leiddi til þess að hann hefur komið fyrir kolli í sturtunni á heimili sínu. Einn daginn var hann í heitri sturtunni, sem varð til þess að eistun á honum urðu mjúk og lítil, sem leiddi til þess að það rann í gegnum gatið og byrjgaði að bólgna. Afleiðingarnar voru að hann sat pikkfastur með kollinn á eistanu.
Eftir þolraunina fór Claus beina leið á Facebook og sagði frá reynslu sinni og skrifaði því næst langt kvörtunarbréf á heimasíðu IKEA verslunarinnar. Hann sagði að hann hafði áttað sig á því að annað eista væri fast í kollinum og að hann væri í vondum málum. Eftir stutta stund varð vatnið kalt og þá var hann í enn verri málum.
Vatnið var kaldara en bros tengdamóður minna þegar ég giftist dóttur hennar. í örvæntingu minni teygði ég mig í hárblásarann til þess að halda mér heitum og þá áttaði ég mig á því að ég var frjáls frá kollunum.
Til allrar lukku hefur Claus fundið góða lausn á vandamálinu, svo það gerist ekki aftur. Gott er að ekki fór verr fyrir þessum húmorista.
Sjá einnig:IKEA húsgögn taka á sig nýja mynd
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.