Þessi æðislega, klassíska uppskrift er frá Albert Eldar. Það eiga eflaust margir minningar um að hafa borðað þessa súpu í æskunni. Svakalega góð!
———————-
Brauðsúpa – rúgbrauðssúpa. Uppáhaldssúpur mínar á bernskuárunum voru lúðusúpa og rúgbrauðssúpa. Eftir að ég varð fullorðinn fékk ég einhvers staðar brauðsúpu að borða, í henni var uppistaðan fransbrauð og ca þriðjungurinn rúgbrauð. Það þótti mér ekki góð súpa. Til að rifja upp sæluminningar tengdar rúgbrauðssúpunni fékk ég uppskriftina hjá mömmu og er hún hér lítillega breytt. Bæði rúgrauð og maltöl innihalda mikinn sykur þannig að þarf ekki aukasykur. Gerum hvað við getum til að draga úr sykuráti.
Brauðsúpa – rúgbrauðssúpa
600 g seytt rúgbrauð
2 1/2 b maltöl
3-4 b vatn
1 msk edik
2-3 msk sítrónusafi
1/2 sítróna í sneiðum
1/2 dl rúsínur
1/3 tsk kanill
1/3 tsk salt
Þeyttur rjómi
Leggið rúgbrauðið í bleyti í maltöli og vatni í 2-3 tíma. Setjið í pott ásamt ediki og sítrónusafa. Sjóðið í 10 – 15 mín. Pískið kekki úr súpunni og bætið við vatni eftir þörfum. Látið að því búnu sítrónusneiðar, rúsínur, kanil og salt saman við. Berið fram með þeyttum rjóma.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.