Robert Kardashian og Blac Chyna sögðu frá kyni ófædds barns síns í frumsýningu af raunveruleikaþætti sínum.
Sjá einnig:Blac Chyna og Rob Kardashian trúlofuð
Stuttu áður hafði Rob látð hafa eftir sér að hann myndi heldur vilja strák, en þurfti heldur betur að gleypa þau orð sín þegar í ljós kom að þau eiga von á stelpu. Hann segir þó að hann sé afar hamingjusamur yfir því að dóttirin sé heilbrigð og voru fjölskyldumeðlimir ekki lengi að fara á samfélagsmiðla til að segja frá kyninu.
Rob segir að hann hafði frekar langað í strák svo hann myndi geta haldið fjölskyldunafninu lifandi í framtíðinni og átti hann erfitt með að leyna því að hann varð fremur vonsvikinn þegar hann fékk fyrst að vita kynið. Rob átti einnig mjög náið samband við föður sinn
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.