Ellen Pompeo (46) er að eldast svakalega vel og hún veit það. Hún vill að dætur hennar muni gera það sama. „Við verðum betri með aldrinum,“ segir Ellen í samtali við People. „Við eigum að hvetja hver aðra og hafa samkennd með öðrum. Við eigum að hjálpa öðrum og líða vel með okkur sjálf,“ segir þessi glæsilega leikkona sem við þekkjum best úr þáttunum Greys Anatomy.
Sjá einnig: 10 merki um að þú sért að eldast
Ellen segir líka í þessu viðtali að það sé svo mikið af röngum skilaboðum í gangi og ein þeirra séu að minna sé í okkur spunnið eftir því sem við eldumst. „Sannleikurinn er að við verðum betri með aldrinum, að öllu leyti og við þurfum að hætta að hugsa þetta öðruvísi. Ég er til dæmis 10 sinnum betri kona núna, en ég var fyrir 10 árum síðan.“