Brad Pitt er algjörlega miður sín tveimur vikum eftir skilnaðinn við Angelina Jolie. Hann hangir í símanum við foreldra sína nokkrum sinnum á dag, grætur og getur hreinlega ekki trúað því hvert líf hans hefur farið.
Sjá einnig: Marion er miður sín – Hélt ekki framhjá með Brad Pitt
Angelina sótti um skilnað við Brad eftir að hann reifst við 15 ára gamlan son þeirra Maddox í einkaþotu þeirra á dögunum. Angelina ásakar Brad um að hafa beitt drenginn ofbeldi en sjónarvottar segja að svo hafi ekki verið. Ástæða skilnaðarins hefur verið mikið á milli tannanna á fólki og hefur Angelina fengið stóran hóp sterkra lögfræðinga með sér í för. Hún hefur fengið það í gegn að hún fari ein með tímabundið forræði yfir börnum þeirra 6, en hún vill ekki að Brad verði kærður fyrir ofbeldi á hendur barna þeirra. Hún gengur jafnvel svo langt að hóta því að segja ekki orð við laganna verði ef þau ákveða á fara þá leið í skilnaðarmáli þeirra.
Vonandi er bræðin að renna af Angelina og þau að ná sáttum, en Brad er hins vegar alveg í molum þessa dagana vegna þessarar sprengju sem hún varpaði á hann. Það hefur löngum verið vitað að Angelina sé afar afbrýðisöm, en hún tók skilnaðardeiluna á hæsta mögulega stig fyrir vikið.
Sjá einnig: Brjálæðislega reið vegna daðurs Brad Pitt
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.