Heather Jones (38) frá Wales missti fimm fatastærðir með því einu að hugsa sig granna. Hún notaði aðferð sem er til þess gerð að endurvíra heilann í að hugsa sig granna.
Á 9 mánuðum hafði Heather farið úr stærð 18 niður í stærð 8 og segir hún það hafa verið mjög auðvelt ferli. Hún segir að hún hafi notað kraft hugans og að hana líði dásamlega vel fyrir vikið.
Sjá einnig: Sjáðu hvað þau gerðu til að grennast
Hún byrjaði verulega að þyngjast eftir að hún fór að borða sér til huggunar fyrir nokkrum árum. Fyrrverandi kærasti hennar og besti vinur lést úr slímseigjubólgu og varð það til þess að hún fór að drekkja sorgum sínum í mat. Hana hafði aldrei grunað að hann myndi deyja úr sjúkdómnum og hélt hún sig meira og minna í rúminu í heilt ár eftir dauða hans, sem leiddi til þess að hún fór að hugsa um að enda líf sitt.
Heather ákvað að hún yrði að gera eitthvað í málinu og fór að leita sér aðstoðar. Hún komst á snoðir um tækni sem kallast tilfinningalega frelsisaðferðin eða Emotional Freedom Technique, sem hvetur fólk til að breyta hugarfari sínu. Það felur einnig í sér að fólk einblínir á það að losa stíflur í orkustöðvunum í líkamanum, sem er uppspretta tilfinningalegra óþæginda. Aðferðin er ekkert ósvipuð nálarstungumeðferð, en í stað þess að stinga sjúklinginn, eru notuð þrýstipunktatækni, þar sem viss svæði eru létt bönkuð til að losa um orkuspennu.
Sjá einnig: Ert þú með mjólkursykursóþol?
Eftir að Heather hafði náð að nýta sér þessa tækni til að koma sér upp úr rúminu, ákvað hún að koma sér aftur af stað og prófa að nota þessa aðferð til að grennast. Hún fór að segja undirmeðvitund sinni að fara að hugsa vel um líkama sinn. Innan skamms var hún búin að ná tökum á löngunun sínum í mat, venjur hennar og hegðanir voru algerlega breyttar og kílóin hrundu af henni átakalaust.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.