Þríburarnir Xavier, Stella og Jake voru alltaf að rífast og slást í bílnum svo pabbi þeirra, Jake White, tók til sinna ráða. Hann deildi lausninni á Facebook síðu sinni og hefur fengið mikla athygli.
„OG… engin meiri rifrildi í bílnum. Mennirnir í bílalúgunni sögðu að þetta væri snilld. Dagur í lífi þríburapabba.“
Í spjalli við TODAY sagði Jake: „Ég gerði þetta því þau voru alltaf að stelast í snarl hvers annars og þegar maður er 2 ára, þýðir það heimsendi. Plöturnar á milli þeirra eru bara úr nokkurskonar korki sem er mjög léttur en það sterkur að þau geta ekki brotið hann.“
Jake segir að þetta hafi tekið hann 5 mínútur að setja í bílinn en nú sé svo friðsælt að keyra með börnin í bílnum.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.