Margir kannast við það hjá sjálfum sér að vera varkár, t.d. ganga úr skugga um hvort rafmagnstæki séu aftengd á kvöldin, hvort nokkuð hafi gleymst að læsa útihurðinni o.s.frv. Þeir sem þjást af áráttu- og þráhyggjuröskun eru hins vegar helteknir af slíkum ótta og hann hefur stöðugt áhrif á líf þeirra. Þeir þurfa að kanna hvort ljósin séu slökkt mörgum sinnum á kvöldi eða þvo sér um hendur 100 sinnum á dag, eftir hverja snertingu við fólk eða hluti. Þráhyggjan veldur því að sömu hugsanir leita aftur og aftur upp í hugann, valda óþægindum, kvíða, sektarkennd eða jafnvel skömm. Áráttan er svo þörf til að gera eitthvað aftur og aftur, stundum til að létta á þráhyggjutilfinningunni.
Sjá einnig: 25 atriði sem pirra vin þinn með áráttu- og þráhyggjuröskun
Dæmi
Síendurteknar hugsanir sækja á sjúklinginn og hann ræður ekki við þær, t.d. að hann sé þakinn sýklum.
Sjúklingur bregst við með því að framkvæma stöðugt ákveðna hegðun, t.d. vera margar klukkustundir í baði.
Algengustu þráhyggjuhugsanirnar eru
Ótti við smit og óhreinindi
Hugsun um hvað sé rétt, hvort maður hafi gert rétt
Hugsanir um að eitthvað sé ógeðslegt við mann
Hugsanir um reglu og skipulag
Hugsun um dauða eða veikindi
Hugsanir um að ráðast á og skaða
Kynferðislegar hugsanir
Sjá einnig: Hver er algengasta áráttuhegðunin?
Algengasta áráttuhegðunin er
Að athuga eitthvað í sífellu, t.d. rafmagn eða læsingu
Að þvo og hreinsa
Að spyrja sömu hluta í sífellu eða segja það sama aftur og aftur
Að raða hlutum stanslaust í röð
Að safna og byrgja sig upp af einhverju
Þunglyndi og aðrir geðrænir sjúkdómar geta fylgt áráttu- og þráhyggjuröskun.
Orsakir sjúkdómsins
Ástæður þess að menn veikjast eru ekki kunnar þó að tilhneiging til erfðafylgni hafi komið í ljós. Áráttu- og þráhyggjuröskun kann m.a. að stafa af skorti á boðefnum í heilanum, aðallega serótóníni. Hins vegar skipta umhverfisþættir líka miklu máli.
Meðferð
Um tvenns konar meðferð er að ræða, lyfjameðferð og samtalsmeðferð.
Lyfjameðferð: Meðal lyfja sem gefið hafa góða raun gegn þessari röskun er ákveðin gerð þunglyndislyfja.
Samtalsmeðferð: Hugræn atferlismeðferð hefur gefið góða raun gegn áráttu- og þráhyggjuröskun. Þetta er ekki sálgreining þar sem orsaka er leitað í fortíð heldur reyna menn að skilja hegðun sína með því að kanna hugsanir, viðbrögð og atferli. Þetta er t.d. gert með því að skrifa þessar ósjálfráðu hugsanir niður og átta sig á þeim.
Fleiri heilsutengdar greinar má finna á
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.