Fólk var alveg að missa sig yfir útliti Priscilla Presley (71) eftir að hún kom fram í spjallþættinum Lorraine nýlega. Fólk fór á Twitter og hellti hreinlega úr átlisskálum sínum yfir miðilinn og sögðu að hún liti hræðilega illa út. Aðeins örfáir tóku upp hanskann fyrir henni og sögðu hana líta vel út miðað við aldur sinn.
Sjá einnig: 27 manns sem hafa farið of langt í lýtaaðgerðunum
Priscilla hefur nýlega viðurkennt að hafa verið fórnarlamb fúlskulæknis og hafi fengið ólöglegar silicon sprautur í andlit sitt til þess að líta út fyrir að vera yngri. Mjög margir urðu fyrir barðinu á þessum lækni, sem leiddi til þess að hann var handtekinn árið 2008.
Í þættinum talaði hún um hjónaband sitt og samband við Elvis Presley, en þau eiga dótturina Lisa Marie Presley. Elvis og Priscilla voru gift á árunum 1967-1973 og áttu þau afar gott samband sín á milli til hans dauðadags árið 1977. Hún segir að það hafi enginn verið eins og hann og að hann hafði verið frábær, umhyggjusamur, en skapstór. Hún segir að hann hafði verið aðallega verið kapstirður þegar kom að ferli hans, en hafði alla tíð gefið henni mikla gleði.
Priscilla stefnir fljótlega að því að gefa út plötu með goðsögninni og hefur hún fengið nafnið The Wonder of You: Elvis Presley with the Royal Philharmonic Orchestra.
Sjá einnig: Lisa Marie Presley að missa forræði yfir dætrum sínum?
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.