Hér eru gamlar ljósmyndir sem voru teknar af ljósmyndaranum Inge Morath. Hún var einn af frægustu ljósmyndurum eftir seinni heimstyrjöld og myndaði ríka og fræga fólkið í Bandaríkjunum á árum áður.
Sjá einnig:Ljósmyndari fjarlægir símana af myndunum – Sorglegt
Inge kom upprunalega frá Austurríki og var hún ein þeirra sem neitaði að fylgja æsku Hilter og hans tilætlunum. Hún hafði þurft að flýja fótgangandi frá Úkraínu til Austurríkis eftir að Rússar gerðu sprengjuárás á Úkraínu. Eftir það fór hún til París og varð með fyrstu konunum til að vera ráðin sem atvinnuljósmyndari. Inge fékk þau verkefni að ljósmynda fyrirsætur, böll og fegurðarskóla.
Sjá einnig: Ljósmyndari dettur um leið og hann tekur mynd af brúðhjónum
Inge Morath tók ljósmyndir af stjörnum á borð við Audrey Hepburn og Marilyn Monroe, en hún var mjög mikið fyrir að taka myndir af fólki sem voru ekki uppstilltar og baksviðs.
Audrey Hepburn árið 1959
Jayne Mansfield á heimili sínu í hjartalaga baðkari árið 1959
Baksviðs á tískusýningu hjá Dior árið 1954
Baksviðs á Yves Saint Laurent tískusýningu árið 1957
Konur í fegurðarskóla Helena Rubenstein árið 1958
Með leikkonunni Terry Moore baksviðs á tökum kvikmyndarinnar Mighty Joe Young
Marilyn Monroe baksviðs við tökur á kvikmyndinni Misfits árið 1960
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.