Ekki hafa áhyggjur, þú finnur ekki fyrir alkóhólinu í rúsínunum. Gin er búið til úr einiberjum sem hefur bólgueyðandi áhrif og vínber eru full af vítamínum.
2. Ferskari andadráttur með sellerí
Slepptu tyggigúmmíinu og fáðu þér bita af sellerí í staðinn. Trefjaríkir bitarnir hjálpa til við að hvítta tennur og bæta meltingu.
3. Safi úr sítrónu við eyrnaverk
Bleyttu bómullarhnoðra eða eyrnapinna í hreinum sítrónusafa og strjúktu innan úr eyranu. Þetta drepur bakteríur og kemur jafnvægi á pH gildið.
4. Drektu netlute til að styrkja hárið
Gerðu þér netlute sem inniheldur silica sem styrkir hárið. Þú verður þó að fara varlega því of mikið silica getur skaðað nýrun þín.
5. Sætar kartöflur gegn tíðahvörfum
Ógleði og flug/bílveiki veldur því að munnvatnsframleiðsla eykst. Ólífur innihalda tannín sem hjálpar til við að þurrka upp á þér munninn og minnka þannig ógleðina.
7. Notaðu matarsóda til að vinna á blöðrubólgu
Settu teskeið af matarsóda út í glas af vatni. Þetta gerir sýrustigið í blöðrunni basískara og þá er erfiðara fyrir bakteríurnar að fjölga sér.
8. Borðaðu apríkósur til að bæta meltinguna
Finnst þér þú útþanin/n eftir stóra máltíð? Slepptu kökunni og fáðu þér apríkósur í staðinn. Þær innihalda það kalíum og trefjar sem þú þarft á að halda til að bæta meltinguna.
9. Límband á vörturnar
Ef þú setur svona límband á vörturnar virkar það eins og töfrar. Límbandið kæfir vírusinn í vörtunni og það ætti bara að taka nokkra daga að drepa vörtuna.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.