Par í Bandaríkjunum hefur verið handteknið fyrir að sprauta í börn sín þrjú með heróíni. Ashley Hutt (24) og kærasti hennar Leeroy McIver (25) hafa verið færð í gæsluvarðhald vegna þess að þau sprautuðu börn hennar þrjú með heróíni og kölluðu það svefndjús. Börnin þrjú eru á aldrinum 6, 4 og 2ja ára og hefur verið farið með þau til barnaverndar.
Það voru vinir parsins sem tilkynntu barnaverndarnefnd vegna vanrækslu. Þegar yfirvöld komu á staðinn, mátti sjá óhreinar sprautunálar á víð og dreif á heimilinu, ásamt rottuskít.
Þegar börnin voru skoðuð nánar mátti sjá á þeim klórför og ummerki þess að þau hafi verið sprautuð. Elsti sonur móðurinnar sagði að þau hefðu blandað saman vatni og hvítu efni og sprautað í þau og kölluðu þau það meðal sem átti að láta þeim líða vel.
Foreldrarnir hafa fengið á sig nokkrar kærur vegna málsins.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.