Aðdáendur Khloe Kardashian hafa áhyggjur af henni vegna mynda sem raunveruleikastjarnan hefur verið að setja inn nýverið.
Sjá einnig: Khloe er grennri en nokkru sinni fyrr
Á myndunum er hún að sýna sig í uppáhalds mittisþjálfanum sínum og finnst fólki mitti hennar vera orðið allt of grannt. Khloe hefur tekið lífsstíl sinn í gegn síðustu árin en nú finnst aðdáendum hún vera orðin of grönn og gengið of langt í notkun á mittisþjálfanum.
Ummælin hafa þó gengið svo langt að fólk segi að hún sé aumkunarverð og líti miklu verr út en hún gerði og að þeim líki ekki eins vel við hana og þau gerðu þegar hún var með meira kjöt utan á beinunum. Margir benda einnig á að hún sé að fara illa með sig með því að vera að nota þjálfann of mikið og ætti að leita læknis vegna ástandsins.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.