Ofurfyrirsætan og eiginkona söngvarans John Legend mætti á amerísku tónlistarverðlauna hátíðinni. Hún klæddist mjög afhjúpandi kjól og sást bersýnilega að hún var ekki í einum nærfötum undir. Kjólnum var haldið saman með festingum sem minntu á nælur og náði klaufin alveg upp í mitti.
Sjá einnig: John Legend og Chrissy Tiegen fara í sundkennslu
Þrátt fyrir að miðjustykkið á kjólnum hafði verði heilt, tókst henni að sýna allt sitt heilagasta á hátíðinni. Hún stég einnig á svið til að kynna eiginmann sinn, þar sem hann var tilnefndur til verðlauna vegna lagsins Like I´m Gonna Loose You, sem hann syngur með Meghan Trainor.
Þegar Chrissy var að tala uppi á sviði minntist hún á að John væri þekktur fyrir að syngja ástarlög um hana og því engin spurning um að hún sjálf sé mikill innblástur fyrir hann. Hún bætti síðan við að þar sem nýliðnar og leiðinlegar kosningar séu nýliðnar, ættu allir skilið að njóta kvöldsins með svolítilli ást.
Sjá einnig: Þeim var sagt að þær væru of ljótar fyrir Hollywood
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.